Beint á leiðarkerfi vefsins


Góð ráð við afhendingu gagna

Það er okkar metnaður að upplýsa viðskiptavini um góð ráð í byrjun prentverks, með því er bæði hægt að spara tíma og peninga! Hér í tenglum til hliðar eru góðar leiðbeiningar, sem þarf að hafa í huga þegar verkum er skilað til okkar. Ef einhver óvissa er á tæknilegum útfærslum verka, þá bendum við viðskiptavinum okkar á að hafa strax samband við okkur, til að fá nánari ráðleggingar.

Gagnasendingar:
Hægt er að senda okkur gögn í tölvupósti (prent@smidjan.is), eða nota FTP svæðið ef um þung gögn er að ræða. Eins er hægt að skila okkur gögnum á geisladiskum og DVDdiskum. Það er góð regla að þjappa gögnum með Stuffit eða WinZip áður en þau eru send í tölvupósti til okkar.

Góðir punktar:

  • Myndir: Vista í Tiff eða EPS formati, í 300 dpi upplausn (CMYK).
  • Litir: Hafa alla liti í CMYK (ekki RGB)
  • Letur: Skila öllu letri sem er í prentverki til prentsmiðju, eða útlína það.
  • Blæði: Láta allar myndir og grunna, blæða um minnst 3mm út fyrir skorna stærð verksins.
  • Forrit: QuarkXPress, Freehand, Illustrator, Photoshop, Adobe Acrobat og Adobe Indesign.

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Tenglar


Myndir


Simi