Beint á leiðarkerfi vefsins


Prentþjónusta

Þjónusta okkar er margþætt, sem byggist á hraðri þjónustu og framúrskarandi gæðum. Afgreiðslufrestur er styttri en venjulega. Viðskiptavinur getur komið með verkefni að morgni og fengið það afhent seinnipart dags. Við bjóðum alla prentun og eru möguleikarnir endalausir. Allt frá litlu nafnspjaldi upp í risamyndir í metravís, í upplagi sem hentar hverju sinni. Vöruflokkar eru óteljandi og er alveg víst að þú og þitt fyrirtæki finnið þá lausn sem leitað er að, hjá okkur. Einnig bjóðum við upp á almenna hönnun og uppsetningu auglýsinga sem prentgripa og höfum líka innanhúss lítið ljósmyndaver. Fáðu allt á sama stað:

  • Bæklinga
  • Borða
  • Nafnspjöld 
  • Boðskort
  • Plaköt
  • Risaprentun
  • Skýrslur
  • Fréttabréf
  • Eyðublöð
  • Aðgöngumiða
    og margt fleira...
     

Persónugerð prentun (Variable data printing)
Með persónugerðri prentun má merkja hvert og eitt eintak með viðeigandi upplýsingum. T.d. nafn, heimilisfang o.fl. Prentun sem þessi býður upp á beina markaðssókn þar sem ákveðinn hópur er valinn til að sækja á. Bankar, sparisjóðir og bílaumboð hafa mikið verið að nota slíka prentun sökum hagræðis. T.d. þarf ekki að senda bréf, bækling o.s.f.v. á alla línuna, heldur er hægt að afmarka hluta hóps sem á við hverju sinni. Ekki er notast við límmiða, heldur er prentað beint á blaðið sem sparar vinnu og tíma. Það eina sem þarf er EXCEL-skjal með nafnalista eða viðeigandi upplýsingum.

Með persónugerðri prentun færðu það upplag sem þú nákvæmlega þarft .


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Tenglar


Myndir


Simi